-SKECHERS-

~Skech Girls ~

22.01.2007 22:15:11 / Guðný

Bless skech..

Jæja ég held ég geti talað fyrir flestra hönd sem að nokkurn tíman hafa komið að þessari heimasíðu þegar ég segi að hún sé eiginlega bara látin.. Engin af okkur má vera að þessu og við höfum bara allar saman haldið áfram.. Þetta voru samt sem áður of góðir tímar sem að við stelpurnar áttum saman.. haha öll kjánalegu prakkarastrikin og chillið í íbúðinni hjá Selmu og Önnu Kareni.. sumt er því miður til á filmu.. hahahah það er eh sem að við verðum að hittast til þess að horfa á. Mig langar bara að þakka ykkur öllum fyrir þessar góðu stundir og vonandi hittumst við eh allar bráðum þegar allir treysta sér í það.. ... elska ykkur allar og takk fyrir mig DR Skech kveður fyrir fullt og allt kv. Godnew

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 17:51:11 / Anna Karen

næsta helgi

Ok  ætla aðeins að byrja að ræða þetta blogg sem var hérna á undann

 

·         Í fyrsta lagi var þetta ekki til þess að benda á að við værum druslur.

·         Og þetta var bara í gamni gert til þess að gera smá spennging fyrir helginni.

·         Var einungis skrifað til þess að opna sig fyrir öðru fólki en þá er ég ekki að tala um að tosa í sundur á sér lappirnar.  Þeir sem lásu það útúr því eru greinlega þannig sjálfir því ekki var það hugsunin á bakvið þetta.

 

Nú hvernig heppnaðist síðustu helgi, var misjafnt.  Sumir fóru í skemmtistaðasleik, aðrir ekki.  En þetta var allavega hressileg tilraun og niðurstöðurnar eru þær að fólk tengir hössl við drulsuskap og kynlíf.  En því miður er það rangt! :$

 

En nú nenni ég ekki að ræða þetta lengur búið að gera nóg af því í þessum skemmtilegu kommentum frá ófróðlegu fólki.

 

Gær kvöldið

Basshunter- get ekki sagt að hann sé einhver töffari, því meiri nörda upp á sviði hef ég aldrei séð!  Hann kunni 4 lög sem hann endurtók sitt á hvað.  En ágætis skemmtun var þessi útúr poppaða stelpa sem hitaði sig upp á dansgólfinu eins síns liðs með svakalegum tjáningar dansi!- mjöög spes8|

 

Helgin

Hef góðan fíling fyrir helginni- einhver party í gangi og svona8)

Svo er auðvitað útgáfufyrirtækið Sena að halda partý á laugardaginn í Listarsafni Reykjarvíkur og það verður klárlega gaman :D

Við skulum reyna að vera duglegar að taka myndir og setja inn eftir helgi

  og mikið sýnist mér að við þyrftum að fara gera eitthvað í okkar málum því flestir telja að við þyrftum að fara hafa samand við AA- samtökin hahahah..:haha:

nægur tími til þess seinna :P:klikk:

 

 



-ekki kommenta ef þú hefur ekkert nema skítkasst! :D

 

takk fyrir mig

 

-Anna Karen :D

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 18:37:07 / Anna Karen

Reykjavík á hösslinu..!!

Jæja næsta helgi gengur út á eitt.. að HÖSSLA!!!

Ég (Anna Karen) er að halda uppi samfélagi á Minnsirkus.is og datt mér í hug að hvetja unga íslendinga sem eru á lausu eð klæða sig í partybuxurnar og skella sér á djamma og hössla af hörku.

Við stelpurnar byrjum kvöldið í fríu áfengi  á Sólon og þeir strákar sem eru stæltir og fallegir eru velkomnir að koma og kíkja á okkur eftir klukkan tólf ;)

 Hössl- helgi 10. - 11. nóvember

Frammundan er hressandi helgi og kvet ég nú alla sem eru “single” að koma sér í hösslgírinn og skella sér á djammið. Við skulum fylla bæinn af fallegu og skemmtilegu fólki sem er í leit að hössli. Verum ekki feimin og hleypum daðrinu í okkur út. Nú skulum við undirbúa okkur við mestu “playa”- helgi EVER

Stelpur: · Ekki verið hræddar við að taka fyrsta skrefið · Bjóðið gæjunum í glas · Verið dömur

Strákar: · Bjóðið píunum í glas · Hrósið þeim · Og verið herramenn · Ekki nota lame pick-up línur

Verum opin fyrir því að kynnast nýju fólki og gefum öllum tækifæri


» 33 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 18:42:35 / Anna Karen

helgin 3-4 nóv

Sjæse helgin var svakaleg :D

 

Föstudagurinn var mér mjög eftirminnilega þar sem ég bauð stelpunum heim í mat og HALLOWEEN- party í tilefni þess að ég átti afmæli.. fórum svo í bæinn og Fribbi reddi því að við gætum fengið að fljúga inn á Sólon án þess að býða í röð.  Þarna vorum við 9 saman allar skrautlegar í búningum sem flestir voru úr Evu & Adam.

Ég skemmti mér konunglega og vona ég að það gerðu þið líka ;)

 

Laugardagurinn-  þá vaknaði ég eftir að vera búin að sofa í 3 tíma við afmælissöng og mat í rúmið úffff.. ekki sjón að sjá mig þá!  En allavega þá var systir mín að taka þátt í modelfitness og ég og Anna Björk fórum og veittum henni stuðning.  Hún var laaang fallegust á sviðinu en hafnaði í þriðja sæti, óskum henni innilega til hamingju með það.  Eftir það var haldið á American style þar sem Guðrún fékk að borða sóðalegan mat í fyrsta skipti frá því í sumar!  Svo var smá party heima fyrir Guðrúnu og vinkonu hennar sem tók einnis þátt í fitness sama dag.  Þá var haldið áfram fram eftir morgni ad djamma og voru fitness vinkonurnar mjög hressar á því enda ekki búnar að smakka áfengi frá því í maí.

 

Ég hins vegar fór seinust að sofa og það var klukkan 11 um hádegið eftir að hafa verið að drekka blandað við orkudrykki allt kvöldið fram eftir morgni.. hmmm.. I wonder why ég sofnaði ekki?!?! Hehehe.

 

En þakka fyrir skemmtilega helga og vona að sú næsta verði ennþá betri :D

 endilega kíkið á myndirnar :D

http://www.123.is/annakaren/

Kv. anna karen

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 20:58:05 / Anna Karen

icefitness

 

í fyrsta skipti í langan tíma hittumst við stelpurnar og var það á sólon og var slegið í afmælisu veislu sem endaði með ágætisfylleríi.  Fórum í eftirparty og endaði það með opnum bar og var mín ekki bara frekar góður barþjónn,


           þá er það Icefitness keppnin á morgun í Laugardalshöllinni klukkan 20:00 og þá er það hún systir mín sem er að fara keppa.. ég hvet alla sem hafa tíman og vilja hjálpa mér að hvetja hana áfram til sigurs
í gærkvöldi var samanburðurinn og fannst mér hún vera einstaklega falleg á sviðinu, 

endilega kíkið á myndirnar

http://www.minnsirkus.is/Photos/Album.aspx?user_id=19962&albumid=7527

http://picasaweb.google.com/sunnahlingunnlaugs/SamanburUrIcefitness

lang sætasti kroppurinn :D

kv. Anna Karen


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 17:06:18 / Anna Karen

jæja..

þar sem ég hef ekkert betra að gera get ég alveg eins bloggað.

fylla ykkur inní það sem við höfum verið að gera:

- Við Selma og Önnurnar fórum í alls svakalega Spánarferð þar sem haldið var upp á tvítugsafmælið hennar Selmu

-Skechers og Virgins eru vinir og hafa sést á djamminu saman að djúsa. = Skirgins

-Hún Laini marie er flutt heim og eru allir sáttir við það því henni var sárt saknað.

- einnig hélt hún upp á afmælið sitt í nýju íbúðinni sinni sem hún er að leigja með Hafdísi vinkonu sinni.

-Alexandra hins vega lét sig hverfa til spánar í 3 mánuði og kemur hún ekki heim fyrr en um jólin.

- Godnew ávarpaði sig sem gamalmenni því hún varð 21. árs nú á dögunum

-Selma ákvað að fá sér bílpróf sem hafði það í för með sér að fá sér bíl, sem ég kýs að kalla Klósettkaggan þar sem hann fékk óvæntan glaðning sem "welcome-gift"- klósettvafning með vatni í frosti.

- Við stelpurnar höfum verið þær sömu í strákamálum, þær sem eru á föstu er á föstu hinar eru ennþá á lausu.

- næsta djammið okkar verður klárlega 4. nóv þar sem ég á afmæli :D

- Skechers á afmæli þessa helgina og verður eins árs. :D

fyrsta kvöld Skechers

fyrsta djammið í haust eftir heimkomu Spánar

aðalskvísur bæjarins..

þar til næst

-Anna Karen


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 21:35:46 / Tara

hahahaha

þessi síða er of dauð, hahahahahahahahaha samt fun á meðan það entist ;) see ya girls on the flip side hehe

kv.Tara lúði ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 16:10:43 / Anna Karen

afmælisbarn

hún á fæmli í dag í hún á afmæli í dag.. hún á afmæli hún Anna Björk...

til hamingju með daginn sæta 19. ára í dag...

og muna stelpur að mæta hressar til önnu í kvöld..

kveðja okkur Önnurnar og Selmu

erum nefnilega að fara bara eftir 2 daga :D

kv. anna karen senorita


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 14:44:13 / Guðný

Sælar...

Hæbbs.. Ég ætlaði bara að minna klappliðið mitt á það að þið eygið að mæta að hvetja stelpuna sína. Þetta er kl 19:15 á Stjörnuvellinum og ég veit að þið hafið ekkert betra að gera.. Ef að ég hef einhverntíman þurft virkilega mikið á ykkur að halda þá er það núna.. Þetta eru 8 liða úrslit í Bikarkeppninni og það er bara að duga eða drepast...

p.s. by the way þá er ég að fara til Nepal í 2-3 mánuði í janúar :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 20:47:52 / Laini

8 DAGAR Í BENIDORM!!!!

Hola Chicas!!!

Ekki nema 8 dagar i Benidorm stelpur!!!

Ég for tarna um fyrir stuttu eitt kvoldid og ég sá frábaeran stad til ad hittast á... Amstelbar heitir barinn og er a Levante strondinni.. Tetta er bar tar sem er svona bjórdaela og bordunum til vitid orugglega hvada bar tetta er!!! Er ekki málid ad hittast tar tegar tid komid til bene?????

Kv. Laini


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 03:04:42 / Anna Karen

lélgegar auglýsingar

Auglýsingar

 

 



Ok jæja ég hef verið að liggja núna mikið í leti yfir sjónvarpinu og búin að fá góðan tíma til þess að taka eftir öllum þessum hallærislegum  auglýingum sem eru í sjónvarpinu. Hvað er fólk stundum að hugsa þegar það er að koma saman auglýsingum og byggja upp einhverja herferð með því?

 

 



Eins og til dæmis:

 

 



Pepsi max auglýsingarnar

Vá þær gætu bara ekki verið meira leiðinlegar, hvað var fólk að pæla og svo er alveg verið að búa til fleiri svona auglýsingar með sama lélega brandaranum..

Svona eru þær byggðar:

Eitthvað stórhættulegt er að fara gerast, sá sem er í mestu hættunni er boðinn Pepsi max og spyr “are you sure”, alveg laf hræddur og hinir svara “offcourse, no sugar” og hlægja svo!?!?  Ég meina er ekki í lagi, ég fæ kjánabólur á því að horfa á þetta.

 

 



Osta auglýsingarnar

Ok þessar eru ekkert skárri, sami lélegi brandarinn í þessari; einhver lendir í leiðinlega kjánalegu atviki einhver reynir að koma til hjálpar og klúðrar því og allt verður ennþá asnalegra, kemur svo ekki mynd af einhverjum vera að éta ost alveg með þvílíkri ástúð og þá er talað yfir og sagt “bara ef lífið væri jafn einfalt og ostur”. Hvað er hann að meina með því?

 

 



Glitnishlaupið- 19. ágúst

 

 



Afsakið hlé- ? “á meðan þú ferð og sækir hlaupaskóna þína”,

Afsakið hlé- ? “á meðan þú æfir þig í að veifa til áhorfenda”

            Þarf ég að segja meira?

 

 



 

 



Kjötval-kjörval, (man ekki nafnið)

Ósk norðfjörð er í þessum auglýsingum, ok jú ok hún er flott kona og er vann bikiní módel keppnina en er eitthvað sniðugt að vera auglýsa kjötvöru með einhvejum sem var á forsíðu bleikt og blátt? Mér bara finnst það ekki stemma, allavega ef ég væri gaur væri ég ekki að pæla í kjötinu sem hún er að auglýsa, ég myndi frekar horfa bara á brjóstin! En ég meina þetta er bara mín skoðun

 

 



En ég gæti eflaust haldið endalaust áfram

 

 



Viti þið um fleiri böggandi auglýsingar sem ykkur finnst ætti hafa verið nefndar hér?

 

 



Þar til næst

Anna Karen


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 15:24:32 / Anna Karen

of fyndið

Þú veist að árið er 2006 þegar ....

 







1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.














2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.















3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .















4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara
á takkann á sjónvarpinu.














6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.














7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.















8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.














9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.














10. Þú virkilega skrollaðir  tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.














11. Svo hlærðu af heimsku þinni.












12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona víst félst þú
fyrir þessu.





Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn
verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!


En, ef þú bíður of lengi,



mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun. :o )

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 11:11:17 / Guðný

Ammæli :)

Sandra vargurinn okkar á ammæli í dag.. Til hammara með daginn sæta..

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 13:05:43 / Anna Karen

næsta helgi

jæja bara svona svo það sé á hreinu þá erum við að fara stunda NASA næstu helgi..

föstudagurinn:

hin sigursæla hljómsveit Sálarinnar a.k.a besta hljómsveit í heimi stígur á stokkin og opnar húsið klukkan 23 það kostar 1900 kr. inn (er viss um að flestar geta reddað sér á gestalista, ekki ég samt) en allavega þá eru þeir búnir að vera í pásu frá því um áramótin og mig langar ekki að missa af þessari endurkomu :D mætum saman og syngjum okkur hásar með undirspili Stebba Hilmars.

laugardagurinn:

lög þessara hljómsveitar óma um allt þegar sumarið kemur enda ekki skrítið því um geðveika hljómsveit er verið um að ræða sem á ófáa ógleymanlega slagarana. Auðvitað er ég að tala umSkítamóral. húsið opnar einnig klukkan 23 á NASA og er miðaverðið 1000 kr.(eða gestalisti). þessir ofurtöffarar hafa líka verið í fríi og vona ég að við mætum ferskar og hristum upp í danstöktunum okkar :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 15:10:35 / Anna Karen

fyrsta helgin í júlí

er ekki verið að djóka með skemmtilega helgi -ÓLAFSVÍK-

í fyrsta lagi hverjir voru ekki þarna, heyrði að það hefðu verið 5000 manns.

 Kom þarna seint á föstudagkvöldinu og þar biðu Begga (beggi), Aníta (Nitti) og Kristbjörg (krissi) eftir mér á tjaldstæðinu, fór beint í pollagallann og stígvélin fyllti töskuna af áfengi fórum svo á bryggjuballið og dönsuðum línudans með eldri borgurunum.  endaði svo ein í einhverja þrjá tíma og hringdi í næstum alla símskrána mína sem varð til þess að síminn draps hehe.. vaknaði svo ekkert smá hress fórum og fenguim okkur hamborgara á meðan Krissi og Beggi voru að vinna, voru að gefa eithvað allan daginn, hlunka, sleikjóa og svo loks burn. skellti mér einnig í sund.

En á laugardeginum kom næstum allir og tókum við alvöru djamm á þetta í nýju TEAM SKECH peysunum okkar og enda var laugardagurinn ógleymanlegur sem er frekar kaldhæðnislegt þar sem ég man ekkert alltof mikið eftir honum. ég selma og guðný byrjuðum að drekka saman hjá mosófólkinu og duttum all rækilega í það, svo endaði það þannig að ég og selma stungum alla af fórum í tívólíið, rokktónleika, pirra alla á tjaldstæðinu, á rúntinn með einhverjum gæjum og Selma þóttist vera dönsk og það gekk upp. svo endaði ég ein aftur og fór á tónleika með Svörtum fötum með Mumma og Davíð Smára, það var ekkert smá gaman dansaði þar með bjarnabófunum og hitti þar á stelpurnar (beggu, anítu og kritbjörgu). Kvöldið endaði sem sagt þannig með mér, Selmu og Guðnýu á mosótjaldstæðinu að gera alla brjálaða a fíflaganginum í okkur

oof skemmtileg helgi :D:D:D

takk fyrir frábæra helgi stelpur

p.s Anna B þú hefðir átt að vera þarna


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Frí sms